Amandine Toi í Þór

Amandine Toi
Amandine Toi

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við hina 26 ára gömlu Amandine Toi. Hin Franska Amandine er 178 sm á hæð og spilar sem bakvörður.

Eins og svo margar góðar körfuboltakonur á hún að baki feril í bandaríska háskólaboltanum og spilaði með Virginia háskólanum í ACC hluta 1. deildar og skilaði þar góðum tölun í sterkri deild. Síðast lék Amandine með Toulouse í næst efstu deild í heimalandi sínu.

Daniel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs okkar Þórsara er ánægður með liðsstyrkkinn. ,,Amandine er frábær viðbót í sterkan hóp af heimastelpum. Hún hefur reynslu úr sterkri deild í háskólaboltanum, ACC deildinni, þar sem hún var með fínar tölur allan sinn feril. Við erum spennt að fá að vinna með henni í vetur," sagði Danni.