Arnór Þorri semur og Leó kemur frá KA

Mynd: Páll Pálsson, formaður handknattleiksdeildar og Arnór Þorri handsala samninginn
Mynd: Páll Pálsson, formaður handknattleiksdeildar og Arnór Þorri handsala samninginn

Penninn fær enga pásu þessa dagana en tvær undirskriftir áttu sér stað í Hamri í gær.

Arnór Þorri Þorsteinsson framlengdi sinn samning við félagið og mun spila með okkur á komandi tímabili.

Leó Friðriksson tók stökkið yfir ánna og gengur til liðs við Þór frá KA, Leó er afar efnileg vinstri skytta sem er fæddur 2007 og mun leika með 3. flokk og meistaraflokk á komandi tímabili.

Á myndinn hér fyrir neðan er Páll Pálsson (t.v.) og Leó Friðriksson

⚪️ 𝓓𝓕𝓚 🔴