Aðalfundur Þórs miðvikudaginn 30.apríl

Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs verður haldinn í Hamri miðvikudaginn 30.apríl klukkan 19:30.

Samkvæmt 9.grein laga Þórs skal dagskrá aðalfund Þórs vera eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
3. Skýrsla gjaldkera, ársreikningur lagður fram til samþykktar.
4. Tillögur um lagabreytingar, sem löglega eru fram komnar.
5. Kosningar.
6. Ákvörðun árgjalds.
7. Önnur mál.

Breytingar á lögum félagsins verða lagðar fram á fundinum.

Íþróttafélagið Þór hvetur félagsmenn til þess að mæta á fundinn.