Tveir lykilmenn framlengja

Tvær af lykilmönnum KA/Þórs hafa framlengt samning sinn við félagið.

Rakel Sara Elvarsdóttir skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og er nú samningsbundin út tímabilið 2026-2027. Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir enda er Rakel Sara einn allra besti hornamaður landsins.

Rakel Sara er uppalin hjá KA/Þór er 22 ára gömul og leikur í hægra horni. Hún var aðeins 15 ára gömul þegar hún kom inn í meistaraflokkslið KA/Þórs veturinn 2018-2019 og varð strax lykilmaður í liðinu. Hún var valin efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna veturinn 2020-2021 þegar KA/Þór hampaði öllum titlum tímabilsins og stóð því uppi sem Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að vera Meistari Meistaranna.

Rakel Sara framlengir - Bíleyri styrkir KA/Þór

Rakel gekk í raðir norska liðsins Volda tímabilið 2022-2023 þar sem hún lék í efstu deild Noregs sem er ein sterkasta deild heims. Þá var hún einnig valin í A-landslið Íslands en þar áður var hún í lykilhlutverki með yngrilandsliðum Íslands þar sem hún keppti bæði á EM og HM og var valin í lið mótsins.

Rakel sneri aftur heim eftir dvölina í Noregi en varð fyrir því óláni að slíta krossband fyrir um ári síðan. Hún hefur sýnt mikinn karakter og er að koma til baka eftir þessi erfiðu meiðsli og ljóst að það verður gríðarlega mikill styrkur fyrir KA/Þór að njóta krafta hennar á ný en stelpurnar endurheimtu sæti í deild þeirra bestu á dögunum.

Myndatakan fór fram hjá Bíleyri en fyrirtækið hefur verið einn af lykil samstarfsaðilum KA/Þórs undanfarin ár og erum við afar þakklát fyrir þetta góða samstarf við þetta öfluga fyrirtæki hér í bænum.

Lydía Gunnþórsdóttir skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og verður hún því áfram í eldlínunni með okkar öfluga liði sem tryggði sér á dögunum sæti á ný í deild þeirra bestu.

Lydía sem verður 19 ára gömul seinna á árinu er uppalin hjá KA/Þór og hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA/Þórs undanfarin ár en Lydía lék sinn fyrsta keppnisleik aðeins 15 ára gömul.

Auk þess að leika með KA/Þór hefur Lydía verið fastamaður í yngrilandsliðum Íslands en hún lék meðal annars á HM í Kína á síðasta ári með U18 ára landsliðinu.

Lydía framlengir um tvö ár við KA/Þór

Lydía er gríðarlega efnilegur leikstjórnandi, með mikinn leikskilning og er auk þess frábær skotmaður. Þá býr hún yfir miklum leiðtogahæfileikum og drífur liðsfélaga sína með sér. Það eru því afar jákvæð tíðindi að Lydía verði áfram innan okkar raða og hlökkum við svo sannarlega til að fylgjast áfram með framgöngu hennar.

Lydía var mynduð fyrir framan skilti frá Greifanum en Greifinn hefur verið einn af aðalsamstarfsaðilum KA/Þórs undanfarin ár.