Dagur sjálfboðaliðans - Takk fyrir ykkar framlag!

Á degi sjálfboðaliðans sem haldinn er ár hvert þann 5. desember munu ÍSÍ og UMFÍ bjóða sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar að koma í Íþróttamiðstöðina í Laugardal og halda upp á daginn.

Stutt málþing byrjar klukkan 15:00 þar sem Íþróttaeldhugi ársins 2023, Guðrún Kristín Einarsdóttir, mun segja sögu sína af sjálfboðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Jónas Hlíðar Vilhelmsson formaður Fálka mun einnig mæta og segja frá þeirra starfi og að lokum mun Petra Ruth Rúnarsdóttir formaður Þróttar Vogum segja frá því hvað þátttaka í sjálfboðastarfi hefur gefið henni.

Formlegri dagskrá lýkur um klukkan 16:00 en þá er viðstöddum boðið í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar.

Með þessu vilja ÍSÍ og UMFÍ vekja athygli á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða til íþróttastarfsins, en án þeirra gengi starfið einfaldlega ekki upp.

Takk sjálfboðaliðar!

Þar sem sjálfboðaliðar eru dreifðir víða um land og komast væntanlega ekki allir í Laugardalinn. Því hvetjum við alla til þess að muna eftir sjálfboðaliðadeginum, gera sjálfboðaliðum hátt undir höfði og jafnvel halda ykkar eigin hátíð þeim til heiðurs fyrir vel unnin störf í þágu íþróttahreyfingarinnar og ykkar félags.

Búið er að útbúa viðburð á Facebook fyrir þá sem hugsa sér að koma í Laugardalinn.

Að lokum minnum við á kosningu á Íþróttaeldhuganum 2024, hjálpumst að við að beina kastljósinu að okkar frábæru sjálfboðaliðum!

Áfram sjálfboðaliðar og áfram íþróttir!