Egils Appelsín snýr aftur framan á Þórstreyjuna

Samningurinn undirritaður í Hamri í dag.
Haukur Ægir Ragnarsson fh. Ölgerðarinnar og Sveinn Elías J…
Samningurinn undirritaður í Hamri í dag.
Haukur Ægir Ragnarsson fh. Ölgerðarinnar og Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar.

Knattspyrnudeild Þórs og Ölgerðin hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að Ölgerðin verður einn af aðal styrktaraðilum knattspyrnudeildar Þórs næstu tvö árin.

Auglýsingum frá Ölgerðinni verður komið upp við VÍS-völlinn og í Bogann og bætist Ölgerðin þar með í hóp samstarfssaðila sem eru mikilvægir þátttakendur í því að knattspyrnudeild geti haldið úti blómlegu starfi. Fyrir það erum við Þórsarar afar þakklátir.

Meðal annars mun eitt goðsagnakenndasta vörumerki Ölgerðarinnar, Egils Appelsín, prýða nýjan keppnisbúning Þórs frá og með næstu leiktíð. Segja má að um sé að ræða ánægjulegt afturhvarf til fortíðar eða frá því að Egils Appelsín var framan á einni eftirminnilegustu fótboltatreyju Þórs í sögunni sem þá var framleidd af ítalska íþróttavöruframleiðandanum Lotto.

Annar ítalskur íþróttavöruframleiðandi, Macron, mun nú framleiða Þórstreyjuna líkt og undanfarin tvö ár og er hún væntanleg í sölu á vef Macron.

 

Við bjóðum Ölgerðina velkomna aftur í Þorpið og hlökkum til samstarfsins.

Áfram Þór.