Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Matea Lonac hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og er nú samningsbundin liðinu út tímabilið 2026-2027. Eru þetta algjörlega frábærar fréttir enda hefur Matea verið einn besti markvörður landsins frá því hún gekk í raðir KA/Þórs árið 2019.
Matea mætti norður fyrir tímabilið 2019-2020 og hefur leikið með KA/Þór allar götur síðan. Matea sýndi strax styrk sinn með liðinu og vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína er KA/Þór hampaði Íslandsmeistaratitlinum, Bikarmeistaratitlinum, Deildarmeistaratitlinum auk þess að verða Meistari Meistaranna og var þá með bestu markvörsluna í deildinni.
KA/Þór tryggði sér nýverið sæti í deild þeirra bestu á ný eftir að hafa farið taplausar í gegnum Grill66 deildina og var Matea með flest varin skot í deildinni. Tvívegis hefur Matea verið kjörin leikmaður ársins hjá KA/Þór og er hún ákaflega vel liðin hér fyrir norðan. Matea sem varð 33 ára á dögunum hefur leikið alls 140 leiki fyrir KA/Þór í deild, bikar og Evrópu og ljóst að þeir leikir verða enn fleiri.
Samhliða því að spila með KA/Þór hefur Matea séð um markmannsþjálfun yngri flokka Þórs.
Við óskum Mateu og KA/Þór til hamingju með samninginn og hlökkum til að fylgjast áfram með þessum magnaða markverði næstu árin.