Grátlegt jafntefli

Rafael Victor skoraði tvö mörk í leiknum í gær. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson, fotbolti.net
Rafael Victor skoraði tvö mörk í leiknum í gær. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson, fotbolti.net

Best er að hafa sem fæst orð um leik gærkvöldsins, slíkt var svekkelsið að hafa ekki náð sigri í stöðunni 2-1 á 88. mínútu og tveimur fleiri eins og raunin var með okkur Þórsara í leiknum gegn Grindavík í gær.

Fyrri hálfleikur var hræðilegur, seinni hálfleikur frábær. Menn þurfa að skoða af hverju liðið gerir þetta síðustu tvo leiki, það er dýrt að spila ekki leikina á fullu frá upphafi til enda. Mörk Þórs í leiknum skoraði Rafa Victor.