Hafþór Vignisson snýr heim!

Hafþór Vignisson
Hafþór Vignisson

Hafþór Vignisson hefur undirritað sammning við handknattleiksdeild Þórs og mun þar með spila með okkur á næsta tímabili.

Hafþór kemur heim úr atvinnumennskunni en hann hefur leikið með þýska liðinu Empor Rostock og norska liðinu ØIF Arendal en eins og allir þorparar vita þá er erfitt að vera of lengi í burtu.

Við bjóðum Hafþór innilega velkominn heim og hlökkum virkilega til næsta veturs.

⚪️ 𝓓𝓕𝓚 🔴