Jafntefli í Mjóddinni

Ingimar Kristjánsson á ferðinni í leik gegn Keflavík fyrr í sumar. Mynd: Þórir Tryggva
Ingimar Kristjánsson á ferðinni í leik gegn Keflavík fyrr í sumar. Mynd: Þórir Tryggva

Þór og ÍR skiptu milli sín stigunum í Lengjudeild karla þegar liðin skyldu jöfn 1-1 á heimavelli ÍR í gær. Leikurinn var leikinn við afar krefjandi veðuraðstæður á fínum grasvelli þeirra ÍR-inga. 

Mark Þórs skoraði Fannar Daði Malmquist snemma í leiknum en ÍR jafnaði í byrjun seinni hálfleiks.

ÍR voru líklegri til að bæta við mörkum en okkar menn eftir að hafa jafnað og átti Aron Birkir virkilega góðan leik í markinu ásamt Birgi Ómari Hlynssyni í vörninni.

Næsti leikur Þórs er á fimmtudag á Vís-velli okkar Þórsara þegar Grótta kemur í heimsókn.