Knattspyrna: Frítt á leik Þórs/KA og Stjörnunnar í boði VÍS

VÍS býður á völlinn í dag þegar Þór/KA tekur á móti Stjörnunni í 17. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 17:30.

Leikur dagsins er sá fyrsti í 17. umferð Bestu deildarinnar og aðeins tvær umferðir eftir áður en deildinni verður tvískipt fyrir áframhaldið. Þór/KA er í 3. sæti deildarinnar og með öruggt sæti í efri hlutanum, en baráttan heldur áfram um sætin í deildinni. Þór/KA ætlar sér sannarlega ekki að sleppa takinu af 3. sætinu og halda áfram að safna stigum, en til þess þarf meðal annars öflugan stuðning úr stúkunni. 

Frítt er á völlinn, borgarar beint af grillinu og blíðskapar veður í boði síðdegis. Ekkert sem ætti að koma í veg fyrir að við fjölmennum og styðjum stelpurnar.

Nánar á thorka.is.