Knattspyrna: Tap gegn FH

Þór/KA mætti FH í 11. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Gestirnir skoruðu eina mark leiksins og fóru heim með stigin þrjú. Þór/KA þó áfram í 3. sæti deildarinnar.

Þór/KA byrjaði leikinn í gær betur og má segja að eftir mikið leikjaálag að undanförnu hefði verið mikilvægt að ná að skora mark eða mörk snemma í leiknum. Liðið fékk færi til þess, sem nýttust ekki. Eina mark leiksins kom hins vegar þegar gestirnir fengu vítaspyrnu á 40. mínútu.

Þór/KA - FH 0-1 (0-1)

Næsti leikur liðsins er sunnudaginn 7. júlí, útileikur gegn Þrótti.

Nánar á thorka.is.