Knattspyrna: Þór/KA mætir Tindastóli á Dalvíkurvelli kl. 12

Þór/KA mætir liði Tindastóls í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar í dag. Leikurinn fer fram á Dalvíkurvelli og hefst kl. 12 á hádegi.

Ástæður þessa leikstaðar og leiktíma eru þær að Sauðárkróksvöllur er sem stendur ónothæfur fyrir meistaraflokksleiki vegna skemmda sem urðu á undirlagi í leysingum í lok apríl. Grasvellir á Norðurlandi vestra eru ekki orðnir leikhæfir og því þurftu Skagfirðingar að leita yfir í Eyjafjörðinn og fá Dalvíkurvöll lánaðan. Svo óheppilega vill til að meistaraflokkur karla hjá Dalvík á einnig leik á vellinum í dag. Dalvíkur færði sinn leik til 16:30 og leikur Tindastóls og Þórs/KA getur því byrjað kl. 12.

Bæði liðin féllu úr bikarkeppninni í 16 liða úrslitum í fyrra. Tindastóll tapaði þá fyrir Selfyssinguj, 0-1, á Sauðárkrkóki, en ÞórKA tapaði 2-0 fyrir Keflavík í Keflavík.