Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Þórsarar fá ÍR-inga í heimsókn í Höllina í kvöld kl. 19:15 í 16. umferð 1. deildar karla í körfubolta.
Þegar þessi lið mættust í fyrri umferð mótsins í byrjun nóvember höfðu ÍR-ingar betur, unnu með 11 stigum í Breiðholtinu. Þórsarar eru í 8. sæti deildarinnar, hafa unnið fimm leiki, en næstu lið fyrir ofan eru ÍA, Þróttur V. og Skallagrímur, sem öll hafa unnið átta leiki. Þórsarar þurfa því á góðum endaspretti að halda ætli þeir að hífa sig ofar í töflunni, en nú eru sjö umferðir eftir af deildinni áður en úrslitakeppni tekur við.
Tveir nýir liðsmenn bættust í hópinn hjá félaginu fyrir stuttu þegar bræðurnir Orri Már og Veigar Svavarssynir voru fengnir að láni úr Skagafirðinum. Þeir komu báðir við sögu í síðustu umferð, útileiknum gegn Selfossi.