Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Í gærdag var skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning Þórs og Landsbankans. En Landsbankinn hefur í töluverðan tíma verið einn af helstu samstarfsaðilum félagsins og er það gífurlega ánægjulegt að svo verði áfram!
,,Við Þórsarar erum gríðarlega ánægðir með áframhaldandi samstarf við Landsbankann. Samstarfið hefur gengið vel og þökkum við fyrir þann áhuga og stuðning sem Landsbankinn hefur sýnt okkar starfi og vorum við hér í dag að skrifa undir samning fyrir árin 2024 og 2025,“ sagði Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs við tilefnið.
Arnar Páll Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri skrifaði undir samstarfssamningin fyrir hönd bankans og sagði við tilefnið að afar ánægjulegt væri að styrkja jafn öflugt íþróttastarf og Þór bíður upp á í sínum röðum. ,,Við hjá Landsbankanum erum stolt af samstarfi okkar og stuðning við Þór og gleðjumst því að áframhald verði á því,“ sagði Arnar Páll að lokum.