Meistarar meistaranna heiðraðir

Mættu í Hamar á morgun!
Mættu í Hamar á morgun!

Á morgun (fimmtudag) kl.18 í Hamri verður haldin skemmtileg gleði til heiðurs körfuboltastelpunum okkar í tilefni þess að þær unnu titilinn Meistarar meistaranna. Sem er fyrsti titill körfuknattleiksdeildar Þórs síðan árið 1976. Tilefnið er því svo sannarlega skemmtilegt. Við hvetjum alla Þórsara að koma og gera sér góða stund með stelpunum og þyggja smá veitingar.