Nágrannaslagur í Boganum í kvöld

Karen María og liðsfélagar hennar í ÞórKA mæta Tindastól við toppaðstæður í Boganum í kvöld.
Mynd: …
Karen María og liðsfélagar hennar í ÞórKA mæta Tindastól við toppaðstæður í Boganum í kvöld.
Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Það er heldur betur spennandi leikur framundan í Boganum í kvöld. Okkar konur í Þór/KA taka á móti Tindastól í Boganum kl.20.15 í Bestu deild kvenna.

Leikurinn var upphaflega heimaleikur Tindastóls en vegna skemmda á Sauðárkróksvelli var ákveðið að víxla heimaleikjum og spila á Akureyri.

Bæði lið hafa farið vel af stað í deildinni ef mið er tekið af spám fyrir tímabilið og óhætt að segja að framundan sé hörku nágrannaslagur af bestu gerð.