Natalia Lalic í Þór

Körfuboltakonan Natalia Lalic er gengin til liðs við Þór og mun leika með okkar konum í Bónusdeildinni í körfubolta í vetur.

Natalia er áströlsk en með ítalskt vegabréf og lék áður í bandaríska háskólakörfuboltanum með Indiana State Sycamores. Hún er 25 ára gömul og leikur sem bakvörður.

Hún kemur til Þórs frá Woodville Warriors í heimalandinu þar sem hún lék í NBL1 deildinni.

Við bjóðum Nataliu velkomna í Þorpið og hlökkum til að fylgjast með henni í baráttunni í vetur.

Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Tindastóli þann 30.október næstkomandi.