Pílukast: Skemmtimót fyrir konur í tilefni af bleikum október

Næstkomandi föstudagskvöld, 18. október verður haldið skemmtimót fyrir konur í aðstöðu Píludeildar Þórs. Mótið hefst kl 19:30 og aðstaðan opnar kl 18:30.
Allur ágóði mótsins rennur til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.

Sambærilegt mót var fyrir ári síðan og þá mættu 50 konur og skemmtu sér konunglega. Við ætlum að endurtaka leikinn!

Spilaður verður tvímenningur, tvær saman í liði. Keppt verður í riðlakeppni og svo útslætti.

  • Vegleg verðlaun fyrir sigurvegara ásamt útdráttarverðlaunum. Léttar bleikar veitingar verða í boði fyrir keppendur.
  • Þátttökugjald er 1.500kr á mann og greiðist við komu. 
  • Skráning er í fullum gangi hér.
  • Hægt er svo að fylgjast með skráningu hér.
  • Lánspílur á staðnum fyrir þær sem vilja og sjálfteljandi píluspjöld!

Hvetjum allar konur að mæta, bæði vanar og óvanar! 


Hér má sjá myndir frá skemmtimótinu sem haldið var fyrir ári síðan: