Slakt í Njarðvík í 1-5 tapi

Rafa sótti ekki gull í greipar fyrrum samherja sinna í Njarðvík. Mynd: Þórir Tryggva
Rafa sótti ekki gull í greipar fyrrum samherja sinna í Njarðvík. Mynd: Þórir Tryggva

Þór tapaði í gærkvöld 1-5 fyrir Njarðvík í Lengjudeild karla, mark Þórs skoraði Birkir Heimisson í síðari hálfleik.

Þrátt fyrir að frammistaðan hafi ekki verið jafn slæm og tölurnar gefa til kynna þá er nokkuð ljóst að frammistaða sem leiðir af sér 1-5 tap er ekki góð.

Okkar menn fá nú góðan tíma til að sleikja sárin og koma tvíelfdir til leiks þann 12. júní þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Mjólkurbikarnum.