Sólskógar í samstarf við körfuknattleiksdeild Þórs

Körfuknattleiksdeild Þórs fagnar ákaflega áframhaldandi samstarfi við Sólskóga! Forsvarsmenn Sólskóga og körfuknattleiksdeildar sömdu nýverið um áframhaldandi samstarf milli fyrirtækisins og deildarinnar. Sólskógar verða áberandi á heimaleikjum karla og kvennaliða Þórs ásamt því að vera með merki sitt á búningum liðanna eins og reyndar undanfarin ár. Það er gott að eiga góða að!