Strákarnir eiga sviðið í kvöld

Vonandi verður tilefni til fagnaðar í kvöld
Vonandi verður tilefni til fagnaðar í kvöld

Mikilvægur leikur, eins og þeir eru raunar allir, á dagskrá í kvöld á Vís-velli okkar Þórsara í kvöld þegar strákarnir taka á móti Gróttu í 11. umferð Lengjudeildar karla. 

Grótta er sem stendur sæti neðar en Þór í deildinni en með sama stigafjölda en verri markatölu. Þór situr í 9.sæti en Grótta í því tíunda. Hafa skal í huga að 2.-5.sæti fara í umspil um sæti í efstu deild og það eru ekki nema þrjú stig upp í fimmta sæti svo möguleikarnir eru heldur betur til staðar!