Svekkjandi tap í Þorlákshöfn

Eva Wium skoraði 20 stig í kvöld.
Eva Wium skoraði 20 stig í kvöld.

Okkar konur eru án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Bónusdeildinni í körfubolta.

Eftir naumt tap gegn Val á útivelli í fyrstu umferð var komið að því að heimsækja nýliða Hamars/Þórs Þ. í Þorlákshöfn í kvöld. Úr varð hörkuleikur þar sem heimakonur höfðu að lokum betur með fjögurra stiga mun, 95-91.

Nánar er fjallað um leikinn á Vísi og á vef Morgunblaðsins

Næsti leikur okkar liðs er jafnframt fyrsti heimaleikur tímabilsins þegar Grindavík mætir í Íþróttahöllina á Akureyri þriðjudaginn 15.október. Þangað fjölmennum við og hjálpum stelpunum að innbyrða fyrsta sigurinn í deildinni á tímabilinu.

Áfram Þór. 

.

 

.