Þórsar Íslandsmeistarar í Rocket League

Þórsarar fagna titlinum. Frá vinstri: Stefán Máni Unnarsson, Elias Marjala, og Bjarni Þór Hólmsteins…
Þórsarar fagna titlinum. Frá vinstri: Stefán Máni Unnarsson, Elias Marjala, og Bjarni Þór Hólmsteinsson. Á myndina vantar fjórða leikmann liðsins, Emil Valdimarsson.

Þór varð í kvöld Íslandsmeistari í Rocket League með öruggum 4-0 sigri á OGV í úrslitaleik.

Úrslitakvöldið fór fram í Arena í Kópavogi og lögðu okkar menn lið 354 Gaming í undanúrslitum á meðan OGV vann Dusty frekar óvænt.

Hægt er að horfa á endursýningar af leikjunum á Twitch á slóðinni https://m.twitch.tv/videos/2160978401

Innilega til hamingju Þórsarar!