Þórsarar leika í bikarúrslitum

Í kvöld, föstudaginn 13.september, mætast Þór og Stjarnan í bikarúrslitaleik 3.flokks karla í fótbolta. Leikið verður á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ, Samsung-vellinum og hefst leikurinn klukkan 19:15.

Okkar drengir hafa slegið út sameiginlegt lið Austurlands (4-0), Þrótt R. (4-2), FH (4-2) og Njarðvík (4-1) á leið sinni í úrslitaleikinn á meðan Stjörnustrákar hafa lagt Aftureldingu (6-0), HK (4-0), Breiðablik (2-0) og ÍA (4-3) á sinni leið í úrslitaleikinn.

Við hvetjum Þórsara á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna í Garðabæinn og hvetja okkar drengi til sigurs.