Þröstur Jóhannsson er nýr þjálfari karlaliðs Þórs í körfubolta

Stefán Pétursson (t.v.) og Þröstur Jóhannsson, handsala samninginn.
Stefán Pétursson (t.v.) og Þröstur Jóhannsson, handsala samninginn.

Keflvíkingurinn, en samt svoltið mikli Þórsarinn, Þröstur Jóhannsson er mættur aftur norður í Þór og í þetta skiptið til að þjálfa meistaraflokk karla. Margir Þórsarar þekkja til Þrastar enda lék hann fyrir nokkrum árum með Þór og gegndi þar stóru hlutverki og var meðal annars fyrirliði liðsins áður en hann hélt aftur heim til Keflavíkur á sínum tíma.

Hjá Keflavík hefur Þröstur gegnt ýmsum hlutverkum fyrir körfuknattleiksdeildina og meðal annars verið í stjórn hennar eftir að hann var leikmaður. Þetta er hins vegar frumraun Þrastar í þjálfun meistaraflokks og er það okkur Þórsurum sönn ánægja að hann taki þau hjá okkur. 

Þröstur hefur þegar stjórnað sinni fyrstu æfingu hjá Þór og er nú að vinna í leikmannamálum og slíku fyrir næsta tímabil þar sem stefnan er að sjálfsögðu sett hátt eins og vera ber.