Tim Dalger í Þór

Tim Dalger
Tim Dalger

Karlalið Þórs í körfubolta heldur áfram að styrkja sig fyrir veturinn og nú er komið að því að tilkynna komu Tim Dalger til liðsins. Dalger lék síðast í bandaríska háskólaboltanum með liði Saint Louis Billikens og er þetta frumraun hans utan landsteina Bandaríkjanna.

Þröstur Jóhannsson, þjálfari er spenntur fyrir nýja leikmanninum; ,,Tim Dalger er frá Flórída og er íþróttamaður mikill. Hann kemur úr sterku háskólaprógrammi og getur skorað  hvort sem er nálægt körfunni eða langt frá henni. Hann mun hjálpa liðinu okkar mikið."