Útisigur í Garðabæ

Okkar konur gerðu góða ferð í Garðabæ í Bónus deildinni í körfubolta í kvöld. Þar heimsótti Þór Stjörnuna í 8.umferð deildarinnar og úr varð hörkuleikur.

Fór að lokum svo að Þór vann glæsilegan sex stiga sigur, 88-94 eftir æsispennandi leik þar sem okkar konur höfðu frumkvæðið nær allan leikinn.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

Næsti leikur Þórs er heimaleikur gegn Njarðvík 3.desember næstkomandi.