Útisigur í Safamýri

KA/Þór gerði góða ferð í höfuðborgina í dag og vann sinn fimmta sigur í röð í Grill 66 deildinni í handbolta.

Okkar konur heimsóttu Víking í Safamýrina og úr varð hörkuleikur sem lauk með fjögurra marka sigri KA/Þór, 15-19 eftir að staðan í leikhléi var 7-8, KA/Þór í vil.

Nánar er fjallað um leikinn á Akureyri.net.

Næsti leikur KA/Þór er heimaleikur gegn Fjölni næstkomandi fimmtudag klukkan 19:00.