Vetrarstarfið í fótboltanum hefst í dag

Miðvikudaginn 16.október fer yngri flokka starfið í fótboltanum aftur af stað eftir haustfrí.

Æfingar hefjast samkvæmt vetrartöflu hjá öllum yngri flokkum (3-8.flokkur) og eru æfingar komnar inn á Abler hjá iðkendum.

Þjálfararáðningar fyrir komandi tímabil eru vel á veg komnar og munu þjálfarar kynna sín teymi fyrir iðkendum á fyrstu æfingu hvers flokks. Í kjölfarið fá foreldrar upplýsingar sendar á Sportabler auk þess sem þessar upplýsingar verða uppfærðar á heimasíðu Þórs. Í nóvember verða svo boðaðir foreldrafundir í öllum flokkum þar sem skipað verður í foreldraráð.

Hér má nálgast allar lykilupplýsingar um starfið

 

Hér má nálgast allar upplýsingar um skráningu.

Mikilvægt er að allir foreldrar/aðstandendur gangi frá skráningu og kynni sér Abler samskiptaforritið sem notað er fyrir allar tilkynningar og upplýsingar til foreldra.

Iðkendum í 6. og 7.flokki stendur til boða að koma með rútu á æfingar úr Giljaskóla, Síðuskóla og Oddeyrarskóla. Rútuaksturinn er niðurgreiddur að hluta af Akureyrarbæ og styrktur af Arion banka og Samherja sem gerir iðkendum kleift að nýta þjónustuna gjaldfrjálst. Færum við okkar bestu þakkir fyrir það. Nánari upplýsingar um rútuaksturinn á tenglinum hér að ofan.