Áfram heldur vinna við fegrun Þórsvæðisins

Fallegir fánar
Fallegir fánar

Stundum geta litlir hlutir skipt svo miklu máli. Gott dæmi um slíkt sést vel þegar keyrt er inn á bílaplanið við Hamar en nú blasa þar við fjórir fallegir fánar sem setja mikinn svip á aðkomu svæðisins.

Þetta litla verkefni er eitt af fjölmörgum sem miða að því að lita svæðið sem mest í litum félagsins á ýmsa vegu.