Aftur á sigurbraut

Okkar menn fagna fyrr í sumar. Mynd: fotbolti.net
Okkar menn fagna fyrr í sumar. Mynd: fotbolti.net

Eftir frekar magra uppskeru að undanförnu í Lengjudeildinni komust Þórsarar aftur á sigurbraut með sigri á Dalvík/Reyni í kvöld. Leikið var í blíðskaparveðri á frábærum gervigrasvelli þeirra Dalvíkinga.

Lokatölur urðu 3-1 fyrir okkar mönnum og skoruðu þeir Elmar Þór Jónsson, Sigfús Fannar Gunnarsson og Alexander Már Þorláksson mörk okkar manna. 

Sigurinn var í raun aldrei í hætti en Þórsarar komust í 3-0 áður en Dalvíkingar minnkuðu muninn í lokin.

Næsti leikur Þórsliðsins er á útivelli gegn ÍR á sunnudag.