Allir með!

KA og Íþróttafélagið Þór verða með íþróttaæfingar fyrir börn með sérþarfir á aldrinum 6-16 ára í Íþróttahúsi Naustaskóla í vetur.

Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning, hentar betur að vera í minni hópum og hafa aðgengi að fleiri þjálfurum á æfingum.

Allar frekari upplýsingar hér til hliðar.