Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
KA/Þór átti nokkra fulltrúa með landsliðum Íslands um liðna helgi, en U19 og U17 landsliðin fóru til Tékklands og spiluðu bæði tvo leiki gegn landsliðum Tékklands.
Hildur Lilja Jónsdóttir var í leikmannahópi U19 landsliðsins sem mætti Tékkum tvisvar ytra um liðna helgi. Tékkar höfðu betur í báðum leikjunum, 24-17 og svo 26-25 í seinni leiknum. Hildur Lilja skoraði tvö mörk í fyrri leiknum.
U17 landsliðið mætti Tékkum tvisvar. Fjórar úr KA/Þór voru í hópnum hjá U17 landsliðinu, þær Bergrós Guðmundsdóttir, Kristín Birta Líndal Gunnarsdóttir, Lydía Gunnþórsdóttir og Sif Hallgrímsdóttir. Tékkar unnu báða leikina, 29-18 og 28-14. Lydía Gunnþórsdóttir skoraði fimm mörk í fyrri leiknum og þrjú í þeim seinni. Sif Hallgrímsdóttir varði níu skot í fyrri leiknum.
Sjá fréttir á vef HSÍ.
U17 kvenna | Tap í fyrri leiknum gegn Tékkum – HSÍ (hsi.is)
U-17 kvenna | Tap í seinni leiknum gegn Tékklandi – HSÍ (hsi.is)
Sjá frétt á Akureyri.net