Stórsigur á Fjölni

Sigurganga KA/Þór í Grill 66 deildinni í handbolta hélt áfram í kvöld þegar liðið fékk Fjölni í heimsókn í KA-heimilið.

Yfirburðirnir voru algjörir og augljósir frá fyrstu mínútu leiksins enda fór að lokum svo að okkar konur unnu öruggan sigur með 22 marka mun, 37-15 eftir að staðan í leikhléi var 17-7, KA/Þór í vil.

Smelltu hér til að skoða tölfræðina úr leiknum.

KA/Þór trónir á toppi deildarinnar með 15 stig eftir átta leiki.