Engar afsakanir, nú skulu allir stuðningsmenn á völlinn!

Á morgun er sannkallaður risa leikur á dagskrá þegar Þór/KA taka á móti Breiðablik í undanúrslitum Mjólkurbikarkvenna!

Eins og sönnum stuðningsmönnum sæmir ætlum við að fjölmenna á leikinn hjá stelpunum og leggja okkar að mörkum að koma þeim alla leið í úrslitaleikinn í bikar.

Við ætlum að hittast fyrir leik og mynda góða stemningu saman.

DJ Lilja heldur uppi stuðinu, andlitsmálning og ís í boði.

Happdrættismiði fyrir alla sem mæta, flottir vinningar dregnir út í hálfleik.

Styrkir vegna Kvennakvöld Þórs og KA verða afhentir í hálfleik.

Eftir leik munu leikmenn bjóða upp á myndatöku og árita plaköt.

Áfram Þór/KA!