Ert þú búin/n að greiða félagsgjaldið?

Árgjald Íþróttafélagsins Þórs 2024 er 5000 krónur. 

Innheimta fór af stað 1.október síðastliðinn og ættu allir Þórsarar að hafa fengið reikning í heimabankann. Fólk sem telur sig vera með félagsaðild en fær ekki greiðsluseðil í heimabanka er beðið um að snúa sér til framkvæmdastjóra - reimar@thorsport - sími 461 2080. Sama á við um fólk sem hefur áhuga á að ganga í félagið.

Það skiptir félagið okkar gríðarlega miklu máli að félagsgjaldið sé greitt og hvetjum við alla Þórsara til að klára dæmið.

Áfram Þór!