Frábær sigur á Gróttu!

Okkar menn frekar sáttir er þeir komust yfir. Mynd: Skapti Hallgríms
Okkar menn frekar sáttir er þeir komust yfir. Mynd: Skapti Hallgríms

Það er heldur betur að birta yfir gengi karlaliðs okkar Þórsara í fótbolta. En okkar menn unnu góðan sigur á Gróttu á fimmtudagskvöldið.

Fyrri hálfleikur var afar dapur að hálfu okkar liðs og staðan 1-0 fyrir Gróttu. Eitthvað hefur Sigurður Höskuldsson þjálfari sagt í hálfleik því seinni hálfleikur var eign Þórsara sem skoruðu þrjú mörk og unnu leikinn 3-1. Mörk okkar Þórsara skoruðu þeir Ragnar Óli, Kristófer og Rafael.

Næsti leikur er strax á mánudag þegar Grindavík kemur í heimsókn í Þorpið.