Fyrsti sigurinn í höfn eftir framlengdan leik

Stigahæstur í kvöld.
Mynd - Palli Jóh
Stigahæstur í kvöld.
Mynd - Palli Jóh

Okkar menn í körfuboltanum eru komnir á blað í B-deildinni eftir hádramatískan sigur í Höllinni í kvöld.

Þór fékk Skallagrím í heimsókn í Höllina og úr varð hörkuleikur en eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 89-89 og því þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni höfðu okkar menn betur og unnu að lokum tveggja stiga sigur, 100-98.

Smelltu hér til að skoða leikskýrsluna úr leiknum.

Næsti leikur okkar manna er útileikur gegn Snæfelli eftir slétta viku, 8.nóvember, klukkan 19:15.

 

Myndir úr leiknum: Palli Jóh. 

Til að opna albúmið smellið á myndina