Grátlegt tap í Mjólkurbikarnum

Mynd: Þórir Tryggvason
Mynd: Þórir Tryggvason

Bikarævintýrinu er lokið þetta árið hjá okkur Þórsurum eftir grátlegt 0-1 tap fyrir Stjörnunni á Vís-vellinum hér í þorpinu í gær. Sigurmark Stjörnunnar kom í uppbótartíma þegar allt stefndi í framlengingu en heilt yfir var leikurinn afar jafn þó gestirnir hafi verið meira með boltann.

Það er bara upp og áfram, næsti leikur er gegn Fjölni á laugardaginn í Reykjavík. Feykilega mikilvægur leikur og góður möguleiki til að stimpla sig af alvöru inn í toppbaráttu Lengjudeildarinnar.