Þórsarar hefja leik á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í dag þegar þeir sækja Þróttara heim í Laugardalinn í 1. umferð Lengjudeildarinnar. Stuðningsfólk syðra ætlar að hittast í Ölveri og hefja upphitun kl. 17, en leikurinn hefst kl. 19:15.
Þórsliðið hefur verið mikið í umræðunni í vetur með tilkomu nýs þjálfara Sigurðar Höskuldssonar, en einnig deftir góðan árangur í Lengjubikarnum og þær breytingar sem orðið hafa á leikmannahópnum, auk þess sem liðið er komið í 16 liða úrslit Mjólkurbikarkeppninna. Spámenn setja liðið ofarlega í Lengjudeildinni, en svo tekur alvaran við í kvöld og eins og í öllum íþróttum er öflugur stuðningur gulls ígildi. Það sýnir sig ítrekað og stefnir í góðan stuðning heima og að heiman. Þórsarar ætla að hittast í Ölveri frá kl. 17 og halda svo þaðan á Avis-völlinn í Laugardalnum, heimavöll Þróttar, og hefja Lengjudeildarslaginn af krafti.
Leikmannahópurinn
- Alexander Már Þorláksson
- Aron Birkir Stefánsson
- Aron Ingi Magnússon
- Auðunn Ingi Valtýsson
- Árni Elvar Árnason
- Ásbjörn Líndal Arnarsson
- Birgir Ómar Hlynsson
- Birkir Heimisson
- Bjarki Þór Viðarsson
- Davíð Örn Aðalsteinsson
- Egill Orri Arnarsson
- Einar Freyr Halldórsson
- Elmar Þór Jónsson
- Fannar Daði Malmquist Gíslason
- Haukur Leó Þórðarson
- Hermann Helgi Rúnarsson
- Ingimar Arnar Kristjánsson
- Jón Jökull Hjaltason
- Kjartan Ingi Friðriksson
- Kristófer Kristjánsson
- Marc Rochester Sörensen
- Rafael Victor
- Ragnar Óli Ragnarsson
- Sigfús Fannar Gunnarsson
- Sigurður Jökull Ingvason
- Sverrir Páll Ingason
- Vilhelm Ottó Biering Ottósson
- Ýmir Már Geirsson
Komnir
- Auðunn Ingi Valtýsson (úr láni hjá Dalvík/Reyni)
- Árni Elvar Árnason frá Leikni
- Birkir Heimisson frá Val
- Jón Jökull Hjaltason frá ÍBV
- Rafael Victor frá Njarðvík
- Sigfús Fannar Gunnarsson (úr láni hjá Dalvík/Reyni)
Samningsbundnir leikmenn á láni
- Atli Þór Sindrason í Kormák/Hvöt
- Haukur Helgason í KF
- Kristinn Bjarni Andrason í Kormák/Hvöt
- Nökkvi Hjörvarsson í Kormák/Hvöt
- Pétur Orri Arnarson í Kormák/Hvöt
- Viðar Már Hilmarsson í Magna
Farnir
- Akseli Kalermo til Finnlands
- Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Val
- Kristján Atli Marteinsson í ÍR
- Nikola Kristinn Stojanovic í Dalvík/Reyni
- Ómar Castaldo Einarsson í Víking Ó.
- Rafnar Máni Gunnarsson í Völsung
- Sigurður Marinó Kristjánsson, hættur
- Valdimar Daði Sævarsson í Gróttu