Knattspyrna: Stórleikur í 8-liða úrslitum í dag!

Spilar Marc sinn fyrsta leik (þetta tímabilið) í kvöld ?
Spilar Marc sinn fyrsta leik (þetta tímabilið) í kvöld ?

Það er sannkallaður risa leikur á dagskrá á VÍS-vellinum í Þorpinu í dag kl.18:00 ! Stjarnan heimsækir okkar pilta í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla!

Okkar menn hafa farið í gegnum tvo erfiða útileiki gegn Fjölni og Gróttu á leið sinni í 8 liða úrslitin og nú er komið fyrsta heimaleiknum sem við fáum.

Veðrið er frábært og allar aðstæður eins og best verður á kosið! Það er að vanda vegleg upphitun í Hamri fyrir leik og hefst hún tveimur tímum fyrir leik, kl.16.00.

🥛8 liða úrslit Mjólkurbikarsins
🥳16:00 Upphitun í Hamri
🍻 Happy Hour
🍥 Frítt Candy Floss
🌞 Sunshine
⏰18:00 Þór -Stjarnan