Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Kostadin Petrov lék í gær með landsliði Norður-Makedóníu á HM. Fyrsti leikmaður Þórs til að skora á HM.
Koki og landar hans máttu sætta sig við 12 marka tap gegn Norðmönnum, en okkar maður skoraði fjögur mörk í leiknum. Fram kemur í frétt á akureyri.net að þetta hafi verið fyrstu mörk sem leikmaður Þórs skorar á HM í handbolta. Aðrir Þórsarar sem spilað hafi með landsliðinu hafi á þeim tímum verið leikmenn annarra liða. Þá kemur einnig fram í frétt Skapta að leikmaður Þórs á síðastliðnu tímabili, Tomislav Jagurinovski hafi skorað eitt mark fyrir Norður-Makedóna í gær.
Sjá frétt Skapta Hallgrímssonar: Fyrstu mörk leikmanns Þórs á HM í handbolta | akureyri.net