LANGÞRÁÐ RISA FRÉTT!

Teikningar af fyrirhugaðri framkvæmd
Teikningar af fyrirhugaðri framkvæmd
Til hamingju Þórsarar! Það voru að berast risa skilaboð!! Nýtt gervigras verður lagt á svæði félagsins og hefjast framkvæmdir alveg á blá næstunni! 
Framkvæmdin ásamt fleiru sem er á döfinni verður kynnt á félagsfundi sem haldin verður mjög fljótlega. 
 
Vitnum í stjörnublaðamanninn Skapta Hallgrímsson á Akureyri.net;
 
,,Bæjarráð Akureyrar samþykkti í morgun samning við Íþróttafélagið Þór um upphitaðan gervigrasvöll á svæði félagsins í Glerárhverfi.
 
Um er að ræða svæðið Ásinn austan við keppnisvöll félagsins. Þar verður knattspyrnuvöllur í fullri stærð, 105 x 68 m, flóðlýsing og 35 x 80 metra æfingasvæði. Gert er ráð fyrir þeim möguleika að 500 manna áhorfendastúka verði reist austan við völlinn en hún er ekki hluti af samningnum.
 
Verði samningurinn samþykktur á fundi bæjarstjórnar í næstu viku, sem gera má ráð fyrir að sé aðeins formsatriði, munu framkvæmdir hefjast í haust með jarðvegsskiptum og áætluð verklok eru eftir eitt ár, í júní 2025. Kostnaður við framkvæmdina er 700 milljónir króna.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar sat hjá við afgreiðslu málsins í bæjarráði í morgun en lét bóka:

Það er hafið yfir allan vafa að útiæfingaaðstaða fyrir yngri iðkendur knattspyrnu á Þórssvæðinu er óviðunandi og hægt að færa rök fyrir því að bregðast hefði átt við mun fyrr. Sit hjá undir málinu í dag og tek afstöðu á bæjarstjórnarfundi í næstu viku þegar tími hefur gefist til að rýna í gögn sem lágu ekki fyrir fyrir fundinn. Þ.e. hvað þessi framkvæmd þýðir fyrir framkvæmdaáætlun næstu ára og fjármögnun hennar"