Bergrós og Lydía æfa með U19

Yngri landslið Íslands í handbolta eru við æfingar um helgina þar sem valdir voru æfingahópar hjá U15, U17 og U19.

Í U19 eigum við tvo fulltrúa þar sem þær Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir eru í æfingahópnum sem Ágúst Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson, landsliðsþjálfarar U19, völdu.

Báðar hafa þær leikið stórt hlutverk í liði KA/Þórs í Grill 66 deildinni í vetur en liðið trónir á toppi deildarinnar og hefur ekki tapað leik í fyrstu átta leikjum deildarinnar.

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.