Oddur með þeim bestu

Oddur í vinstra horninu í liði umferðarinnar
Oddur í vinstra horninu í liði umferðarinnar

Oddur Gretarsson, stærstu kaup Þórs í handbolta í mörg ár og eðal Þórsari í alla staði, var meðal bestu manna í lokaumferð þýsku 1.deildarinnar sem fram fór fyrir skömmu og var því, eðlilega, valinn í lið umferðarinnar.

Oddur skoraði 10 mörk í leiknum og klikkaði ekki á skoti. Þetta var síðasti leikur Odds fyrir Balingen, þar sem hann hefur spilað sl. 7 ár, áður en hann kemur heim í faðm þórsfjölskyldunnar núna í sumar.

Alvöru leið til að enda 11 ára feril í Þýskalandi og frábært fyrir okkur Þórsara að fá Odd heim í fullkomnu standi.