Pílukast: Æfingar fyrir yngri iðkendur hefjast í dag

Píludeildin býður krökkum og unglingum á aldrinium 10-16 ára að æfa frítt út janúar. Kjörið tækifæri fyrir áhugasöm að koma og prófa.
 
Æfingar á vormisseri verða á sömu dögum og fyrir áramót, á mánudögum og miðvikudögum. Tímasetning breytist aðeins og verða æfingarnar kl. 17-18.
 
Skráning iðkenda er á Sportabler - sjá hér - en æfingagjald á vorönn er 22.000 og fylgir pílutaska með greiddu æfingagjaldi.