Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Þórssvæðið iðar alltaf af lífi en sérstaklega þessa helgina þegar Pollamótið okkar árlega fer fram. Mótið hófst í gær og heldur áfram í dag.
Ekki hefur veðrið leikið við mótsgesti það sem af er, en fólk er með sól í hjarta og gleðina að vopni og það er það eina sem skiptir máli!
Mótinu líkur um miðjan dag í dag en fjörið er samt bara rétt að byrja þá því risa ball er í Boganum í kvöld. Þar sem okkar allra besti Palli syngur og DJ-ar fram á rauða nótt!
Þess ber að geta að ballið er opið öllum sem aldur hafa til og kostar miðinn 5.900 kr.