Rúnar Daði æfir með U15

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla, valdi á dögunum 29 leikmenn til úrtaksæfinga dagana 7.-9. ágúst. Æfingarnar fara fram á Laugardalsvelli.

Í hópnum er Þórsarinn Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson.

Rúnar Daði er sóknarmaður sem hefur skorað 17 mörk í tólf leikjum með 3. og 4.flokki Þórs í sumar.

Smelltu hér til að skoða hópinn í heild sinni.

Óskum Rúnari til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.