Slæmt tap gegn Þrótti

Auðunn Ingi Valtýsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net
Auðunn Ingi Valtýsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net

Þórsliðið náði sér aldrei í strik í 0-1 tapleik gegn Þrótturum í Lengjudeild karla í knattspyrnu í leik sem fram fór á Vís-vellinum á Akureyri í dag. Liðinu gekk illa að skapa sér færi og var sigur baráttuglaðra Þróttara sannfærandi og sanngjarn.

Óhugnarlegt atvik átti sér stað í lok leiks þegar markvörður okkar Þórsara, Auðunn Ingi Valtýsson fékk þungt höfuðhögg en skv. heimildum heimasíðunnar er hann á góðum batavegi eftir að hafa fengið nokkuð spor saumuð í höfuðið. 

Næsti leikur Þórs er gegn ÍBV á heimavelli og er óhætt að segja að okkar menn þurfi að fara að rífa sig í gang á heimavelli og hafa trú á því að hann sé jafn sterkur fyrir liðið og hann á að vera.